top of page

Frístundakynning 1. september

Á morgun, fimmtudaginn 1. september, bjóða Árbæjarskóli og Foreldrafélagið í fyrsta skipti upp á svokallaða frístundakynningu. Aðilar í hverfinu okkar og nærumhverfi sem bjóða upp á ýmis konar tómstunda- og frístundastarf fyrir börn og unglinga hafa boðað komu sína. Þar sem grunnskólum borgarinnar eru sett ströng skilyrði varðandi auglýsingar þá tókum við höndum saman, þar sem þessi skilyrði eiga ekki við foreldrafélagið. Hér gefst tækifæri til að nálgast flestar upplýsingarnar á einum og sama staðnum og hitta og tala við fulltrúa frá þeirri tómstund sem áhugi er fyrir. Endilega kynnið ykkur auglýsinguna og við hlökkum til að sjá sem flesta


Nýlegar færslur
Eldri fréttir
Fylgstu með á
  • Facebook Basic Square
bottom of page